GA: Stefanía Kristín og Örvar Akureyrarmeistarar í 5. sinn!!!
Síðasti dagur meistaramótsins var spilaður laugardaginn 13. júlí og mikil spenna ríkti í mörgum flokkum.
Eftir 3 góða daga rigndi loksins aðeins á keppendur þann 13., sem létu það þó ekki á sig fá og skiluðu margir inn sínum besta hring í mótinu.
Um kvöldið var svo haldin verðlaunaafhending og lokahóf, þar sem spjallað var og hlegið langt fram á kvöld. Það voru auðvitað Vídalín veitingar sem sáu um veisluna og að allt gengi sem best, en þétt var setið af flottum GA kylfingum og mökum þeirra.
Sigurvegarar í meistaraflokki voru þau Örvar Samúelsson og Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, en þau voru bæði að sigra mótið í 5. skiptið! Frábær árangur!!!
Skemmtilegu móti lokið og var gaman að sjá góð skor og marga kylfinga taka þátt. Veðrið skemmdi ekki fyrir og völlurinn kominn í frábært stand, sem er alltaf gaman að sjá.
Í vikunni verður svo Golfgleði yngstu kylfinganna, og fylgjum við því eftir með stóru unglingamóti yfir helgina!
Akureyrarmeistarar 2019:
Meistaraflokkur karla: Örvar Samúelsson
Meistaraflokkur kvenna: Stefanía Kristín Valgeirsdóttir
1. flokkur karla: Konráð Vestmann Þorsteinsson
1. flokkur kvenna: Brynja Herborg Jónsdóttir
2. flokkur karla: Atli Þór Sigtryggsson
2. flokkur kvenna: Hrefna Svanlaugsdóttir
3. flokkur karla: Ólafur Helgi Rögnvaldsson
3. flokkur kvenna: Hrefna Magnúsdóttir
4. flokkur karla: Jón Ragnar Pétursson
5. flokkur karla: Daníel Skíði Reykjalín Ólafsson
50+ karla: Vigfús Ingi Hauksson
50+ kvenna: Unnur Elva Hallsdóttir
65+ karla: Heimir Jóhannsson
65+ kvenna: Sólveig Erlendsdóttir
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
