Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 15. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Justin Leonard – 15. júní 2019

Afmæliskylfingur dagsins er bandaríski kylfingurinn Justin Leonard. Justin sem heitir fullu nafni Justin Charles
Garrett Leonard fæddist í Dallas, Texas 15. júní 1972 og er því 47 ára í dag.

Leonard gerðist atvinnumaður í golfi 1994. Á þeim tíma hefir hann m.a. sigrað í 12 mótum á PGA mótaröðinni. Einn fræknasti sigur Leonard var þegar hann sigraði á Opna breska árið 1997. Leonard er kvæntur Amöndu og á 4 börn: Skylar Charles Leonard, Luke Garrett Leonard, Avery Kate Leonard og Reese Ella Leonard.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Margaret Ives Abbott, 15. júní 1878; Salthússmarkaður Á Stöðvarfirði 15. júní 1970 (49 ára); Rakel Þorbergsdóttir, 15. júní 1971 (48 ára); Matt McQuillan, (kanadískur kylfingur) 15. júní 1981 (38 ára); Richie Ramsay, 15. júní 1983 (36 ára); Momoko Ueda, 15. júní 1986 (33 ára); Hreyfing Heilsulind, 15. júní 1986 (33 ára); Lanto Griffin, 15. júní 1988 (31 árs);  Flottur Fatamarkaður, 15. júní 1992 (27 ára); Súfistinn Kaffihús, 15. júní 1994 (25 ára STÓRAFMÆLI!!!); Cameron Mackray Champ, 15. júní 1995 (24 ára) …. og … Birgir Eiríksson

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is