Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2019 | 19:00

Nordic Golf League: Axel bestur íslensku kylfinganna 4 e. 1. dag Bravo Tours Open

Fjórir íslenskir kylfingar taka þátt í móti vikunnar á Nordic Golf League mótaröðinni: Axel Bóasson, GK og GR-ingarnir Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús.

Mótið fer fram dagana 1.-3. maí 2019 í Rømø golfklúbbnum, í Rømø, Danmörku.

Axel lék best íslensku kylfinganna; var á 3 yfir pari, 75 höggum; fékk 2 fugla, 2 skolla 13 pör og 1 þrefaldan skolla. Axel er sem stendur T-28.

Andri Þór og Guðmundur Ágúst léku á 8 yfir pari, 80 höggum og Haraldur Franklín var á 10 yfir pari, 82 höggum.

Sjá má stöðuna á Bravo Tours Open með því að SMELLA HÉR: