Saga Traustadóttir, GR.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2019 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Saga & félagar luku keppni í 8. sæti á MWC Championship!

Saga Traustadóttir, GR og félagar í Colorado State tóku þátt í Mountain West Conference Championship (MWC Championship).

Mótið fór fram á hinum sögufræga Dinah Shore Tournament velli í Mission Hills golfklúbbnum í Rancho Mirage, Kaliforníu, dagana 15.-17. apríl sl.

Saga lék á samtals 22 yfir pari, 238 höggum (83 80 75) og var á  2.-3. besta skorinu í liði sínu, lauk keppni T-29.

Lið Colorado State varð í 8. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Mountain West Conference Championship SMELLIÐ HÉR: