Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Bernd Ritthammer (22/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.

Þeir, sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver, voru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke. Allir nema Ritthammer hafa verið kynntir, þannig að í dag er röðin komin að honum.

Bernd Ritthammer fæddist 18. apríl 1987 og á því 32 ára afmæli eftir 2 vikur!

Hann er 1,82 m á hæð og 78 kg.

Ritthammer átti farsælan áhugamannsferil. Hann varð m.a. þýskur meistari U16 árið 2002. Ritthammer gerðist síðan atvinnumaður í golfi 2006.

Hann hóf ferilinn á  EPD Tour (nú Pro Golf Tour) í byrjun árs 2007. Þar sigraði hann í 2 mótum 2009 og varð í efsta sæti peningalistans þannig að hann komst á Áskorendamótaröð Evrópu, keppnistímabilið 2010.

Hann spilaði á Áskorendamótaröðinni 2010 og 2011 og vann sér inn kortið sitt á Evróputúrnum 2012 í gegnum Q-school.

Árið 2012 spilaði hann bæði á Evróputúrnum (í fyrsta sinn) og á Áskorendamótaröðinni og árið eftir 2013 var hann aftur kominn á Áskorendamótaröðina.

Hann vann tvívegis aftur 2013 á EPD túrnum.

Hann spilaði á Áskorendamótaröð Evrópu (ens.: Challenge Tour) árið 2014 og bæði á Áskorenda- og Evróputúrnum 2015. Í júlí 2016 vann hann í fyrsta sinn á Áskorendamótaröðinni þegar hann sigraði á Made in Denmark Challenge.

Á ferli sínum sem atvinnumaður hefir hann sigrað í 7 mótum; 4 EDP  og þrívegis á Áskorendamótaröð Evrópu (ens.: Challenge Tour).