Ragnhildur Kristinsdóttir GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2019 | 05:30

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur lauk keppni í 7. sæti í Tennessee!!!

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu Eastern Kentucky University (EKU) tóku þátt í Bobby Nicholls Intercollegiate, sem fram fór dagana 17.-19. mars 2019 og lauk í gær.

Mótið fór fram á Highlands velli, Sevierville golfklúbbsins í Sevierville í Tennessee.

Þátttakendur voru 73 frá 12 háskólum.

Ragnhildur lauk keppni í 7. sæti í einstaklingskeppninni, sem er stórglæsilegur árangur!!!

Hún lék samtals á 7 yfir pari 220 höggum (73 74 73). Hún var á 2. besta skorinu í liði sínu.

EKU lauk keppni í 3. sæti í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á Bobby Nicholls Intercollegiate með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Ragnhildar og EKU er 29. mars í Kentucky.