Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2019 | 12:00

Dýr á golfvöllum 2019 (1): Snákar

Hér er ætlunin að birta nokkur myndskeið og annað efni af snákum á golfvöllum, en erlendis virðast þeir vera nokkur algeng fyrirbæri.

Hvað myndi maður gera ef maður stæði frammi fyrir snák á golfvelli? Líklega hlaupa í burtu.  En gaurinn í fyrsta myndskeiðinu virðist vera að bögga snákinn en ekki öfugt. Sjá með því að SMELLA HÉR. 

Á næsta myndskeiði er cobra snákur á golfvelli og hvað gerir maður þá? Þeir sem mættu cobrunni hentu í hana golfboltum, sem ekki er það viturlegasta. Það er eins og snákurinn rísi upp og tjái viðkomandi ógnandi: „Ég skora á þig að gera þetta aftur!“ Sjá má myndskeið af cobrunni á golfvellinum með því að SMELLA HÉR:

Hér er ein mynd frá vallarstarfsmanninum Ed Martinez í Deerwood golfklúbbnum í Kingwood, Texas. Sem betur fer leit hann niður áður en hann setti höndina niður til að skipta um bolla! Martinez birti mynd af snákshöfðinu á félagsmiðlum og skrifaði við: „Ég hati snáka!“ Lái honum hver sem vill – ekki gaman í vinnunni, þegar svona hættur leynast. Kannski gott að hafa þetta í huga þegar boltar eru teknir úr bollum, þegar golf er spilað erlendis!

Snákur

Hér er myndskeið af cobra snák sem eltir myndatökumann á golfvelli – Cobrubit eru hættulegri en t.a.m. bit frá svörtu mömbunni, sem er eitursnákur. Lumbrað er á aumingja cobrunni, en líklega hefir sá sem var eltur af henni verið glaður.  Sjá með því að SMELLA HÉR:

Hér er loks myndskeið af kylfingi sem einfaldlega tekur snákinn, sem er á golfvellinum og fyrir honum upp og hendir honum út í röffið. Ekki víst að þetta sé gáfulegt! Sjá með því að SMELLA HÉR: