Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Lori Beth Adams (25/58)
Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.
Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.
Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.
Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 undir pari.
Í dag verður fram haldið að kynna þær 3 sem deildu 33. sætinu en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetita Baek frá Ísrael. Dori Carter hefir þegar verið kynnt og í dag er það Lori Beth Adams.
Lori Beth Adams fæddist 3. mars 1992 í Burlington, Norður-Karólínu og er því 26 ára.
Lori Beth er dóttir hjónanna Steven og Terry Adams … Frændi hennar, Keith Harris, spilaði golf í UNCW.
Lori Beth byrjaði að spila golf 7 ára.
Meðal áhugamála Adams utan golfsins er að prjóna, spila körfubolta, og veiða.
Hún var í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of North Carolina og má sjá hápunkta ferils hennar í honum með því að SMELLA HÉR:
Lori Beth átti ágætis áhugamannaferil, en meðal hápunkta á honum er eftirfarandi:
*Hún sigraði 2014 á Seahawk Classic
*Hún var First-team CAA All-Conference selection tvö keppnistímabil í röð
*Hún varð í 2. sæti á North South Amateur mótinu 2014
*Lori Beth var valin CGA leikmaður ársins 2015
Lori Beth spilaði í 1 móti á Symetra Tour árið 2016 og síðan 2017 í 15 mótum.
Árið 2017 var Lori Beth tvívegis meðal efstu 10 á Symetra Tour en besti árangurinn var T-6 árangur á Self Regional Healthcare Foundation Women’s Health Classic mótinu.
Árið 2018 komst Lori Beth fyrst á LPGA og tókst að endurnýja spilaréttindi sín í úrtökumóti LPGA 2018 og spilar nú á LPGA að nýju 2019.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
