Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og Texas State. Photo: Valdís Þóra
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2019 | 12:00

ALPG: Valdís Þóra fyrsti íslenski kvenkylfingurinn með þátttökurétt á mótum ALPG!!!

Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, hefur lokið leik á úrtökumóti fyrir Áströlsku atvinnumótaröðina, s.s. Golf1.is greindi frá fyrst íslenskra golffréttavefa í morgun.

Valdís Þóra endaði í 16.-18. sæti en hún lék á +3 samtals. Alls tóku 81 atvinnukylfingar þátt frá 30 þjóðum.

Valdís Þóra náði með árangri sínum að tryggja sér keppnisrétt á ALPG eða áströlsku LPGA mótaröðinni og er fyrst íslenskra kvenkylfinga til þess að afreka það. Þar sem að það eru tíu kylfingar af alls 20 efstu á þessu úrtökumóti er Valdís í hópi 10 kylfinga sem fengu keppnisrétt á ALPG.

Átta efstu á þessu móti tryggðu sér keppnisrétt á ISPS Handa mótinu sem er hluti af LPGA mótaröðinni. Valdís Þóra er með keppnisrétt á því móti sem fram fer 7.-10. febrúar.

Fimmtán efstu tryggðu sér keppnisrétt á Australian Ladies Classic Bonville, ActewAGL Canberra Classic og Women’s NSW Open. Valdís Þóra er með keppnisrétt á þeim mótum sem fram fara í lok febrúar á þessu ári.

Ástæðan fyrir að ég spila í þessu móti er sú að þetta gefur mér fleiri möguleika á að komast inn í Opna Ástralska mótið á þessu ári sem og því næsta og einnig inn í Vic Open á næsta ári en ég er nú þegar komin inn í það mót á þessu ári. Einnig fannst mér gott að fá eitt svona „upphitunarmót“ hér í Ástralíu áður en hin mótin byrja og ná flugþreytunni alveg úr mér fyrir þau mót,“ skrifar Valdís Þóra á fésbókarsíðu sína.“