Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2019 | 09:00

ALPG: Valdís Þóra T-10 e. 2. dag

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, tekur nú þátt í úrtökumóti, sem gefur þátttökurétt á ástralska LPGA, eða ALPG eins og það er skammstafað.

Úrtökumótið fer fram á golfvelli Ballarat golfklúbsins, í Victoríu ríki, Ástralíu 28.-30. janúar 2019.

Valdís Þóra lék 2. hringinn í nótt og var á sléttu pari, 72 höggum. Hún er T-10 eftir 2. dag þ.e. jöfn 3 öðrum kylfingum, hinni kínversku Jing YanIngrid Gutierrez Nunez frá Mexíkó og Melanie Maetzler frá Austurríki, en þær hafa allar spilað á samtals 1 yfir pari, 145 höggum; Valdís Þóra. (73 72).

Aðeins 4 kylfingar af 81 þátttakanda hafa spilað undir pari.

Efst eftir 2. hring er Peiying Tsai frá Taiwan, enn efst en hún er búin að spila á samtals á 8 undir pari, 136 höggum (65 71).

Efstu 20 eftir 3 hringi fá þátttökurétt á ástralska LPGA.

Til þess að sjá stöðuna á úrtökumótinu SMELLIÐ HÉR: