Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Dori Carter (24/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 undir pari.

Í dag verður byrjað að kynna þær 3 sem deildu 33. sætinu en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetita Baek frá Ísrael, og er það Dori Carter, sem verður kynnt í dag.

Dori Carter fæddist 3. febrúar 1987 og er því 31 árs. Hún er frá Valdosta í Georgíuríki í Bandaríkjunum.

Dori byrjaði að spila golf 8 ára. Hún segir foreldra sína vera þá aðila, sem haft hafa mest áhrif á golfferil hennar. Meðal áhugamála Dori er að spila á gítar, fylgjast með háskólaíþróttunum í Bandaríkjunum og horfa á kvikmyndir.

Sem áhugamaður tók Dori þátt í U.S. Women’s Open Championship risamótinu árið 2005 og árið 2009 var hún sigurvegari á USGA State Team Championship. Hún spilaði golf með golfliði University of Mississippi, þar var Carter tvívegis All-SEC First-Team selection (2008, 2009), Golfweek All-American árið 2009 og NCAA All-American, árið 2008.

Árið 2012 gerðist Dori Carter atvinnumaður í golfi. Hún komst strax á Symetra Tour þar sem hún vann Pennsylvania Classic 2010. Hún komst síðan seinna það ár strax á LPGA í fyrstu tilraun. Keppnistímabilið 2011 var henni þó ekki gott á LPGA, besti árangur hennar þar var T-47 árangur á Avnet LPGA Classic.

Árið 2018 spilaði hún aðeins í 9 mótum á LPGA Tour en náði niðurskurði í 6 þeirra. Eins spilaði hún í 8 mótum á Symetra Tour árið 2018 og náði 5 sinnum niðurskurði en besti árangur hennar á árinu var T-26 árangur sem hún deildi með Danielle Downey á Credit Union Classic.

Með þátttöku sinni í Q-school heldur Dori kortinu sínu eitt keppnistímabil enn.

Til þess að komast á heimasíðu Dori SMELLIÐ HÉR: