Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2019

Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Karine Icher. Karine fæddist 26. janúar 1979 í Châteauroux, Frakklandi og á því 40 ára stórafmæli í dag. Hún gerðist atvinnukylfingur árið 2000 og síðan þá hefir hún sigrað í 5 mótum á Evrópumótaröð kvenna, en þar hefir hún spilað nær óslitið frá árinu 2001, en seinni árin hefir hún aðallega verið á LPGA. Icher eignaðist dóttur í júlí 2011 og þá spilaði hún á hvorugri mótaröðinni né tók hún þátt í Solheim Cup það árið. Icher hefir spilað í 4 Solheim Cup mótum; árin 2002, 2013, 2015 og 2017. Besti árangur Icher á risamóti er T-6 árangur á Opna bandaríska kvenrisamótinu 2005.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Sir Henry Thomas Cotton, 26. janúar 1907-22. desember 1987 (hefði orðið 112 ára í dag); Una Sveinsdóttir 26. janúar 1960 (59 ára); Bjarni Benediktsson, 26. janúar 1970 (49 ára); Vilhjálmur Einar Einarsson 26. janúar 1977 (42 ára); Paul Sheehan, 26. janúar 1977 (42 ára); Guido Van Der Valk, 26. janúar 1980 (39 ára); Simth Lee 26. janúar 1984 (35 ára) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband viðgolf1@golf1.is