Árið gert upp – Helstu erlendu golffréttir júlí 2018
Sei Young Kim frá S-Kóreu sigraði á Thornberry Creek LPGA Classic mótinu, sem fram fór í Oneida, Wisconsin, dagana 4.-7. júlí 2018.
Þann 5.-8. júlí 2018 fór PGA Tour mótið A Military Tribute at The Greenbrier fram á The Old White TPC, í White Sulphur Springs, í Vestur-Virginíu. Sigurvegari mótsins varð Kevin Na.
Þann 10. júlí 2018 var frétt þess efnis á Golf 1 að frá og með 2019 myndi PGA Championship risamótið fara fram í maí, en það hefir hingað til verið það fjórða og síðasta af risamótunum 4 í karlagolfinu og hefir alltaf farið fram í ágúst.

Thidapa Suwannapura
Thidapa Suwannapura frá Thaílandi sigraði á LPGA mótinu, Marathon Classic presented by Dana
Sylvania, í Ohio dagana 11.-14. júlí 2018.
Það var suður-afríski kylfingurinn Brandon Stone sem sigraði á Aberdeen Standard Investments Scottish Open (Opna skoska), móti vikunnar á Evróputúrnum, sem fram fór 12. -15. júlí 2018.
Michael Kim sigraði á PGA Tour mótinu John Deere Classic sem fram fór á TPC Deere Run í Silvis, Illinois, dagana 12.-15, júlí 2018.

Francesco Molinari
Francesco Molinari varð fyrsti ítalski kylfingurinn til þess að sigra á Opna breska sem fram fór í Carnoustie GC í Angus á Skotlandi 19.-22. júlí 2018.
Troy Merritt sigraði á PGA Tour móti þeirra sem heima sitja og fram fór sömu daga (19.-22. júlí 2018) og Opna breska þ.e. Barbasol Championship. Mótið var haldið í Keene Trace golfklúbbnum, í Nicholasville, í Kentucky.

Suzann Pettersen (t.v.) og Catriona Matthew (t.h.)
Þann 24. júlí 2018 var frétt þess efnis á Golf 1 að fyrirliði liðs Evrópu í European Solheim Cup Catriona Matthew hefði útnefnt Suzann Pettersen og Kathryn Imrie sem varafyrirliða sína í Solheim Cup 2019, sem fram fer í september 2019 á velli Gleneagles hótelsins í Perthshire, Skotlandi.
Þann 25. júlí 2018 var frétt þess efnis á Golf 1 að Colin Montgomerie teldi evrópska Ryder bikars liðið vera það besta hingað til.

Angela Stanford
Bandaríski kylfingurinn Angela Stanford sigraði á 5. risamóti ársins hjá konunum The Evían Championship, sem fram fór í Evian-les-Bains, í Frakklandi dagana 25.-28. júlí 2018.
Það var thaílenski kylfingurinn Ariya Jutanugarn, sem bar sigur úr býtum á Opna skoska kvennamótinu, eða m.ö.o. Aberdeen Standard Investments Ladies Scotish Open, sem fram fór 26.-29. júlí 2018. Ariya lék á samtals 13 undir pari, 271 höggi (67 – 65 – 73 – 66).
PGA Tour mótið RBC Canadian Open fór fram dagana 26.-29. júlí 2018 í Glen Abbey GC, Oakville,Ontario, í Kanada. Sigurvegari varð Dustin Johnson.
Richard McEvoy sigraði á Porsche European Open á Green Eagle golfvellinum í Hamborg Þýskalandi, en mótið fór fram 26.-29. júlí 2018.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
