Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2018 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Sandra Changkija (16/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, em það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu. Guilia Molinaro hefir þegar verið kynnt og í dag er það Sandra Changkija sem verður kynnt.

Sandra Changkija

Sandra Changkija fæddist  í Alexandríu, Virginíu 10. maí 1989 , dóttir Savek Changkija og Suparkorn Limsombunchai og er því 29 ára.

Hún gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 7 árum, 2011, eftir háskólanám í Nova Southeastern College í Fort Lauderdale, Flórída, (viðskiptafræði) en sjá má öll afrek hennar í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:

Fyrst um sinn, 2011 spilaði hún í 2. deildinni þ.e á Symetra Tour en hlaut þegar keppnisrétt á LPGA 2012, sem hún hefir haldið síðan.

Sandra Changkija byrjaði að spila golf 5 ára og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfferil sinn.

Meðal áhugamála hennar er að vera í ræktinni, elda og eiga tíma fyrir sig sjálfa.