Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Ruixin Liu (10/58)
Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið.
Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.
Byrjað verður að kynna 10 efstu á peningalista Symetra Tour og síðan 45 efstu og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA. Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og þær ásamt þeim 10 sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur verða því kynntar hér á næstu mánuðum.
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.
Sú sem kynnt verður hér er stúlka sem varð í 1. sæti á peningalista Symetra Tour og er þannig komin með fullan spilarétt á LPGA. Þetta er kínverska stúlkan Ruixin Liu , en hún vann sér inn$124,839 í verðlaunafé í mótum Symetra Tour. Áður hafa, Dottie Ardina (2. sæti) Pavarisa Yokutan (3. sæti); Elizabeth Szokol (4. sæti), Linnea Ström (5. sæti), Stephanie Meadow (6. sæti), Kendall Dye (7. sæti), Charlotte Thomas (8. sæti), Isi Gabsa (9. sæti) og Dana Finkelstein (10. sæti) verið kynntar.
Ruixin Liu fæddist 13. nóvember 1998 og er því nýorðin 20 ára. Hún er frá Dalian í Kína.
Hún sagði í viðtali að breytingin frá því að vera námsmaður í Kína og atvinnumaður í golfi hefði verið gríðarleg.
Ruixin fluttist með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna fyrir 6 árum, þ.e. 2012 og þá til Orlandó í Flórída, þar sem hún býr nálægt Lake Nona Country Club, þar sem margir þekktir atvinnukylfingar er félagar. Þjálfari Riuxin er Gregor Jamieson, sem hefir verið framkvæmdastjóri Golf at Lake Nona frá því að klúbburinn opnaði fyrir 30 árum, 1988. Meðal fyrrum nemenda hans eru mörg þekkt nöfn þ.á.m. Helen Alfredsson, Retief Goosen, Thomas Bjorn og Candy Hanneman, sem bæði spilaði á LPGA og Symetra Tour, líkt og Ruixin.
Ruixin byrjaði í golfi með pabba sínum, Zuoyi Liu. Hún var mjög ung þegar hann fór með hana fyrst á golfvöllinn, aðeins 3 ára…. og hún varð strax „hooked“ og var farin að spila og keppa á fullu þegar hún var aðeins 6 ára.
Liu sigraði 3 sinnum í mótum Symetra Tour á 2018 keppnistímabilinu: í lokamóti ársins: Symetra Tour Championship; í Island Resort Championship í júní og IOA Golf Classic í september. Riu trónir því á toppi peningalista Symetra Tour og er komin með kortið sitt og þ.a.l. fullan spilarétt á LPGA keppnistímabilið 2019.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
