GR: Elvar Már Kristinsson hlaut háttvísibikarinn
Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig.
Elvar Már Kristinsson hlaut viðurkenninguna í ár. Elvar er mikil fyrirmynd fyrir aðra iðkendur. Hann er mjög duglegur við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir seinustu árin.
Elvar hafnaði í öðru sæti á lokamóti Íslandsbankamótaraðarinnar. Elvar er frábær fyrirmynd fyrir aðra iðkendur bæði innanvallar sem utan.
Er þetta í 15 skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar.
2004 Þórður Rafn Gissurarson
2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir
2006 Guðni Fannar Carrico
2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2009 Andri Þór Björnsson
2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2011 Sunna Víðisdóttir
2012 Ragnhildur Kristinsdóttir
2013 Saga Traustadóttir
2014 Ingvar Andri Magnússon
2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir
2016 Dagbjartur Sigurbrandsson
2017 Böðvar Bragi Pálsson
Golf 1 óskar Elvari Má til hamingju með Háttvísibikarinn 2018!
Heimild: Heimasíða GR
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
