Cameron Smith sigraði á Australian PGA
Það var Cameron Smith sem sigraði á Australian PGA Championship mótinu.
Smith stóðst áhlaup frá landa sínum Marc Leishman og náði að verja titil sinn á Australian PGA Championship mótinu.
Hinn 25 ára Smith hóf lokahring sinn á RACV Royal Pines Resort með 3 högga forystu en eftir 9 holur var hann kominn 2 högg á eftir Leishman, sem átti frábærar fyrri-9 með skor upp á 32 þar.
Smith, hins vegar, sýndi stáltaugar, gaf í þegar á reyndi og spilaði seinni-9 á 33 – skrifaði undir kort upp á 70 högg og var því samtals á 16 undir pari, 272 höggum (70 65 67 70); 2 höggum á undan nr. 21 á heimslistanum, Marc Leishman sem varð að láta sér lynda 2. sætið með jafnt skor upp á 14 undir pari, 274 höggum (68 68 69 69).
Sigur Smith kom í aðeins 20. mótinu sem hann spilar í á Evróputúrnum og hann er sá fyrsti sem tekst að verja titil sinn á Australian PGA frá því Robert Allenby tókst það fyrir 17 árum, árið 2001.
Enski kylfingurinn Ross McGowan deildi 3. sætinu ásamt heimamanninum Matthew Millar en báðir voru á samtals 11 undir pari, hvor. McGowan setti auk þess nýtt vallarmet á Royal Pines, kom í hús á lokahringnum á glæsilegum 9 undir pari 63 höggum (skilaði skollalausu skorkorti með 9 fuglum og 9 pörum).
Ástralski kylfingurinn Jake McLeod spilaði lokahringinn á 74 höggum og varð T-19 á 3 undir pari, en sá árangur dugði honum til þess að tryggja sér efsta sætið á peningalista Ástralasíu mótaraðarinnar og þar með kortið sitt á Evróputúrnum á næsta ári!!!
Sjá má lokastöðuna á Australian PGA Championship með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
