Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2018 | 15:00

Var um reglubrot Tiger að ræða á 18. holu 2. hrings Hero World Challenge?

Tiger Woods er við keppni í Albany á Hero World Challenge.

Það leit allt mjög vel út fyrir Tiger áður en hann kom að síðustu holu þeirri 18. á 2. hring sínum – hann var með „hreint“ þe. skollalaust skorkort.

En á 18. fór allt á verri veg – teighögg hans lenti í runna hægra megin á brautinni.

Og Tiger ákvað að reyna að slá boltann úr runnanum í stað þess að taka víti.

Tiger á öðru hné sínu með aðeins nokkurra sentimetra baksveiflu að vinna með náði að slá boltann undan runnanum og í röffið.

En það sem leit út eins og frábært „rescue“ högg til að byrja með hefir orðið efni að deilum meðal þeirra sem á horfðu því þegar vídeó upptökur eru skoðaðar þá sést að Tiger sló tvívegis í bolta sinn.

Spurning er hvort ekki sé um brot á reglu 14-4 að ræða í reglubókinni sem varðar 1 höggi í víti.

Tiger hins vegar slapp við vítið vegna ákvörðunar 34-3/10 (sem tók gildi í apríl á síðasta ári) en hún takmarkar notkun vídeóupptaka sem sönnun á brotum kylfinga.

Skv. reglubókinni á einvörðungu að dæma brot sem hægt er að sjá með beru auga en ekki með nálarauga myndbandsupptökuvéla – Þannig að Tiger slapp, en mörgum finnst samt súrt í broti að besti kylfingur allra tíma skuli ekki hafa tekið á sig víti, þar sem það sást að hann tvísló í boltann.