Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2018 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Charlotte Thomas (3/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið.

Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Byrjað verður að kynna 10 efstu á peningalista Symetra Tour og síðan 45 efstu og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA. Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og þær ásamt þeim 10 sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur verða því kynntar hér á næstu mánuðum.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Sú sem fyrst verður kynnt hér er stúlka sem varð í 8. sæti á peningalista Symetra Tour og er þannig komin með fullan spilarétt á LPGA. Þetta er Charlotte Thomas, en hún vann sér inn $60,952 í verðlaunafé í mótum Symetra Tour. Áður hafa, Isi Gabsa (9. sæti) og Dana Finkelstein (10. sæti) verið kynntar.

 Charlotte Thomas fæddist 23. febrúar 1993 í Guildford, Englandi og er því 25 ára.

Thomas lék í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Washington og átti stóran hlut í því að liðið vann sinn fyrsta  NCAA Division I National Championship titil árið 2016.

Thomas komst strax í 2. deildina þ.e. Symetra Tour 2017 og hefir spilað tvö keppnistímabil þar.

Á 2018 keppnistímabilinu varð hún 10 sinnum meðal efstu 20 í mótum Symetra Tour og það varð til þess að hún landaði 8. sætinu á peningalista mótaraðarinnar.

Meðal þess sem Thomas sagði eftir að henni var ljóst að hún spilar meðal heimsins bestu á LPGA keppnistímabilið 2019 var eftirafarandi: „Mér finnst þetta enn ansi súrrealistískt, en þetta er draumur sem rættist. Ég hef hugsað um að spila á LPGA síðan ég var í menntaskóla og sú staðreynd að þetta sé að verða að veruleika er ótrúleg. Það er ótrúlegt að vera að keppa við hliðina á þeim bestu í heimi viku eftir viku og sjá hvernig leikur minn er í samanburði við þeirra.