Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2018 | 18:00

Hver er kylfingurinn: Tommy Fleetwood?

Eftir Ryder bikars keppnina 2018 veit hver maður, sem eitthvað fylgist með golfi, hver enski kylfingurinn  Tommy Fleetwood er.

En fyrir þá sem hafa gaman að vita öll smáatriði fer hér svarið við spurningunni í fyrirsögn þessarar greinar þ.e. svarið við spurningunni um hver kylfingurinn Tommy Fleetwood sé.

Tommy Fleetwood

Thomas Paul Fleetwood fæddist í Southport í Englandi 19. janúar 1991 og er því 27 ára.

Hann hefir, eftir að hann gerðist atvinnumaður aðallega spilað á Evróputúrnum og sigrað 4 sinnum þar og samtals í 7 mótum á alþjóðlegum vettvangi. Hann var nýliði á nýafstöðnu Ryder móti 2018 og átti stóran þátt í sigri liðsins þar sem hann sigraði í 4 af 5 viðureignum sínum í mótinu. Stórglæsilegur árangur það af nýliða að vera!!!

Fyrir Ryder mótið vakti hann athygli á sér fyrir stóryrtar yfirlýsingar sínar um Tiger og Phil Mickelson – Sjá m.a. með því að SMELLA HÉR: 

Fleetwood átti fínan feril sem áhugamaður þar sem hann vann m.a. Scottish Amateur Stroke Play Championship árið 2009  og English Amateur 2010 og varð í 2. sæti á Amateur Championship 2008 og New South Wales Amateur,  Spanish Amateur og European Amateur árið 2010. Fleetwood var í liði Breta&Íra í Walker Cup 2009. Hann var einnig í 3. sæti á heimslista áhugamanna og nr. 1 á  Scratch Players World Amateur Rankings. Í júlí 2010 varð Fleetwood í 2. sæti á eftir Daniel Gaunt í English Challenge á Áskorendamótaröð Evrópu. Hann sigraði síðan á English Amateur í ágúst það ár og gerðist atvinnumaður stuttu síðar.

Atvinnumannsferill Fleetwood
Fleetwood spilaði fyrsta leik sinn sem atvinnumaður á Opna tékkneska (Czech Open) 2010 á Evróputúrnum, þar sem hann lauk keppni T-67. Í september 2011 sigraði hann í fyrsta sinn á Áskorendamótaröð Evrópu þ.e. á  Kazakhstan Open og tryggði sér þar með kortið sitt og spilarétt á Evróputúrnum árið 2012. Frammistaða Fleetwood var í meðallagi á fyrsta keppnistímabili hans á Evróputúrnum en síðan hrökk hann í gírinn um haustið og tókst að halda leikréttindum sínum, með því að verða meðal efstu 10 á South African Open í síðasta móti keppnistímabilsins.

Í ágúst 2013 vann Fleetwood fyrsta sigur sinn á Evróputúrnum en það var á Johnnie Walker Championship á Gleneagles. Hann hafði best í þriggja manna bráðabana, eftir að fá fugl á fyrstu aukaholunni sigraði hann þá Stephen Gallacher og Ricardo González.

Tommy Fleetwood, 22 ára, skegglaus eftir 1. sigurinn á Evróputúrnum 2013.

 

Meðal eftirminnilegra atvika á ferli Fleetwood er að þann 22. maí 2015 fékk hann albatross á par-5 4. holunni í Wentworth klúbbnum á 2. hring BMW PGA Championship. Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Árið 2017 var það besta á ferli Fleetwood ef árið í ár er frátalið. Í janúar 2017 vann hann 2. mót sitt á Evróputúrnum þ.e. Abu Dhabi HSBC Golf Championship, átti 1 högg á Dustin Johnson og Pablo Larrazábal eftir lokahring upp á 67 högg.

Í mars 2017 varð Fleetwood í 2. sæti á WGC-Mexico Championship, aðeins 1 höggi á eftir Dustin Johnson og í apríl 2017 tapaði hann í bráðabana á Shenzhen International fyrir Bernd Wiesberger, á fyrstu holu. Fleetwood spilaði til úrslita eftir að hafa verið 8 höggum á eftir á lokahringnum, en frábær lokahringur upp á 63 högg kom honum í vinningsstöðu, þó hann hafi síðan lent í 2. sæti. Í bráðabananum var Fleetwood á flöt í 2 höggum, en Wiesberger sem var í ógöngum setti aðhöggið sitt innan við 2 metra frá pinna og setti niður fuglapútt fyrir sigur. Í júní 2017 varð Fleetwood í 4. sæti á Opna bandaríska og í júlí vann hann Open de France, en hann átti 1 högg á Peter Uihlein eftir skollalausan hring upp á 66 högg. Með þessum 3. sigri sínum á Evróputúrnum fór Fleetwood úr 99. sætinu á heimslistanum, sem hann var í við ársbyrjun meðal efstu 20.

Eftirminnilegasta ár Fleetwood er síðan væntanlega árið í ár því hann hóf árið með látum með því að vinna Abu Dhabi HSBC Championship; átti 2 högg á Ross Fisher. Hann átti stórglæsilegan lokahring upp á 65 högg, þar sem hann fékk 6 fugla á síðustu 9 holunum.

Fleetwood er 6. kylfingurinn til þess að vera á 63 höggum í sögu Opna bandaríska og jafnaði metið í lægsta höggfjölda á 1 hring á 4. hring Opna breska 2018 á Shinnecock Hills golfklúbbnum í Southampton, New York, 17. júní sl.. Hann varð í 2. sæti á Opna bandaríska, 1 höggi á eftir sigurvegaranum, Brooks Koepka, en þetta er besti árangur Fleetwood í risamóti!  Svo átti Fleetwood stjörnuleiki í Rydernum 2018 með Francesco Molinari, sem varð til þess að nýtt hugtak varð til í Ryders sögunni „Moliwood“, en það orð lýsir frábæru samstarfi þeirra beggja í fjórbolta og fjórmenningsleikjum keppninnar.

Einkalíf

Tommy Fleetwood er kvæntur umboðsmanni sínum Clare Craig en Clare hefir verið umboðsmaður hans frá árinu 2015. Þar áður var Clare varaforseti Hambric Europe og hún er enn í dag einn af forstöðumönnum Richard Burns Foundation, sem er stofnun, sem sett var á laggirnar til heiðurs rallýakstursmanninum, Richard Burns sem dó úr heilaæxli.  Saman eiga þau, Clare og Tommy soninn Franklin sem fæddist 28. september 2017. Clare á einnig 2 syni frá fyrra hjónabandi. Hún er 20 árum eldri en Tommy.

Clare Craig Fleetwood með syni sínum og Tommy, Franklin Fleetwood

Clare og Tommy Fleetwood í Ryder Cup Gala Dinnernum – Clare var ekkert sérlega hrifin af því að vera titluð „WAG“