Arna Rún Kristjánsdóttir, GM. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2018 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Arna Rún varð í 18. sæti á Annual Gilda´s Club Lakers Fall Inv.!

Arna Rún Kristjánsdóttir, GM og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Grand Valley State University (GVSU) tóku þátt í 10th Annual Gilda´s Club Lakers Fall Invite.

Mótið fór fram 29.-30. september 2018 í Meadows golfklúbbnum í Allandale, Michigan og voru þátttakendur 77 frá 13 háskólum.

Arna Rún lék á samtals 17 yfir pari, 161 höggi (84 77) og landaði 18. sætinu í einstaklingskeppninni, en Arna Rún spilaði sem einstaklingur.

Lið Örnu Rún, (GVSU), varð í 2. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á 10th Annual Gilda´s Club Lakers Fall Invite SMELLIÐ HÉR: 

Næsta mót GVSU verður 7. október n.k.