Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2018 | 10:00

Ryder Cup 2018: Evrópsku WAG´s-in

Það er auðvitað verið að sletta svolítið í fyrirsögn þessarar greinar, en með „Evrópsku WAGs-unum“ er átt við eiginkonur og kærustur keppenda í liði Evrópu á Ryder bikars mótinu.

Og þær eru fallegur hópur en tekin var hópmynd af þeim fyrir keppnina.

Þær voru allar með gulan borða í barminum til minningar og heiðurs spænska kylfingsins Celiu Barquin Arozamena, sem var myrt 22 ára á golfvelli við háskóla sem hún stundaði nám í, í Iowa.

Leikmenn liðs Evrópu eru allir með samskonar borða i barminum til minningar Arozamena.

Á hópmyndinni voru m.a. Erica Stoll, eiginkona Rory McIlroy sem stillti sér upp við hlið Emmu Lofgren, eiginkonu Henrik Stenson. (5. (Stoll) og 6. (Lofgren) f.v. á hópmyndinni).

Erica og Rory trúlofuðust einmitt í París fyrir 3 árum.

Meðal annarra sem voru á myndinni voru eiginkona Tommy Fleetwood, Clare Craig, (5. f.h.) sem jafnframt er umboðsmaður hans, eiginkona Francesco Molinari, Valentina Molinari (4. f.h.) og kærasta fyrirliða Evrópu Thomas Björn, Grace Barber.