Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2018 | 03:00

Ryder Cup 2018: Hverjir mætast í tvímenningsleikjum sunnudagsins?

Staðan er 10:6 fyrir tvímenningsleiki sunnudagsins, Ryder liði Evrópu í vil, en í tvímenningsleikjunum getur allt breyst.

12 stig í pottinum og af þeim þurfa „strákarnir hans Thomas Björn“  4 1/2  stig til þess að ná Ryder bikarnum aftur til Evrópu

Spurningin er hverjir mætast í tvímenningsleikjunum?

Svarið:

11:05am McIlroy g.Thomas

11:17am Casey g. Koepka

11:29am Rose g. Simpson

11:41am Rahm g. Woods

11:53am Fleetwood g. Finau

12:05pm Poulter g. Johnson

12:17pm Olesen g. Spieth

12:29pm Garcia g. Fowler

12:51pm Molinari g. Mickelson

12:53pm Hatton g. Reed

1:05pm Stenson g. Watson

1:17pm Noren g. DeChambeau

Næsta spurning: Hvernig fer lið Evrópu að því að vinna? Liðinu nægir að halda jöfnu í 9 viðureignum og 3 mega tapast.

Eða 4 viðureignir verða að vinnast og halda verður jöfnu í 1 viðureign og afgangurinn má tapast.

Ef tippa ætti á hvaða viðureignir líklegast sé að Evrópa vinni þá er svar Golf1 eftirfarandi:

Golf 1 telur líklegast að Svíarnir í liði Evrópu Stenson og Noren sigri mótherja sína – Tiger er aftur með í bakinu, biturt því hann verður eiginlega að spila og má eiginlega ekki semja um að leikurinn falli á jöfnu því þá fær Evrópa dýrmætt hálft stig – Golf 1 tippar  á að jafnvel ef Tiger spilar þá nái Rahm hálfu stigi af liði Bandaríkjanna, ef ekki nái að sigra veikan Tiger. Síðan ætti nr. 1 á heimslistanum, Justin Rose allaveganna að ná 1/2 stigi gegn Webb Simpson ef ekki vinna sína viðureign og þá eru 4 stig í húsi.  Þá er ekkert farið að tala um Molinari og Fleetwood, sem unnið hafa allar viðureignir sínar til þessa, en Bandaríkjamenn þyrstir eflaust í að sigra þá, hvort sem það tekst eða ekki. Síðan er auðvitað ekki að vita hvað nýliðarnir í liði Evrópu þeir Tyrrell Hatton og Thorbjörn Olesen gera, þeir gætu komið á óvart.

Ef nefna ætti þá í liði Bandaríkjanna, sem Golf 1 telur líklegast að geti unnið sínar viðureignir, þá er svarið: DJ, Koepka, Spieth, Fowler og Thomas, þó óendanlega dýrmætt væri ef Rory næði að halda jöfnu gegn Justin Thomas til þess að setja tóninn fyrir sigurgöngu Evrópu.

Hvað verður …. verður spennandi að fylgjast með síðar í dag; en eins og hlutirnir standa nú verður að telja líklegra að lið Evrópu vinni Ryder bikarinn í ár!