Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2018 | 08:00

Ryder Cup 2018: Verst klæddu evrópsku liðin

Yfirleitt ber lið Evrópu höfuð og herðar yfir það bandaríska þegar kemur að klæðaburði og allir kylfingar vita hversu mikilvægt það er fyrir sjálfstraustið að líta vel út, úti á velli.

A.m.k. er klæðaburður eitthvað sem ekki ætti að hafa áhyggjur af þegar fókusinn á allur að vera á leiknum og að vera á sem lægstu skori.

Það sem á eftir fer er auðvitað bara smekksatriði, en hér er ætlunin að geta nokkurra Rydera þar sem lið Evrópu var e.t.v. ekki eins vel klætt og það hefði getað verið.

Fyrst ber að geta myntugrænu jakkanna fyrir 12 árum síðan, 2006 (sjá mynd í aðalmyndaglugga), sem lið Evrópu klæddist í K Club á Írlandi.  Ef þetta átti að vera til heiðurs gestgjöfunum, þá mistókst það skelfilega. Liðið leit út eins og After Eight myntusúkkulaði – flestum finnst það gott … og liðið var líka gott – a.m.k. hafði það betur gegn liði Bandaríkjanna …. en ekki hvað klæðaburð snerti!

Hluti af Rydernum eru Wags-in (Wives and Girlfriends) þ.e. eiginkonur og kærustur leikmanna, sem hljóta mikla athygli og alveg eins mikil samkeppni milli þeirra og eiginmanna þeirra og kærasta a.m.k, hvað snertir það að líta vel út og koma vel fyrir.

Hvað gerðist á vakt Bernard Gallacher 1993 er ekki vitað en flestum finnst eiginkona Sam Torrance hafa átt bestu hugmyndina þegar hún girti þessa ljótu peysu sem eiginkonurnar og kærusturnar áttu að vera í ofan í buxur sínar og faldi sig síðan bakvið næstu Wags (3. f.v.) –  (Sjá mynd hér fyrir neðan):

Ryder liðið evrópska leit heldur ekki vel út í bleiku þó það hafi sigrað 2006 og voru bleiku jakkar sigurhátíðarinnar alveg jafn slæmir og minntugrænlituðu jakkar opnunarhátíðar sömu keppni (sjá hér að neðan).

Já, þið eruð að ná þessu gagnrýnin hér beinist mestmegnis að klæðnaði evrópska liðsins 2006.