Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2018 | 06:45

Keiliskonur á Írlandi

Hópur þrettán Keiliskvenna á aldrinum 68-80 (Sveiflurnar) fóru nú um daginn til Írlands í golfferð.

Upphaflega var áætlað að 14 færu í þessum hóp, en ein veiktist og gat því miður ekki farið.

Hópurinn er nú kominn heim eftir yndislega 5 daga í Carton House, þar sem leikið var á 2 völlum, O‘Meara og Montgomerie.

Veðrið lék ekki við hópinn fyrsta daginn á O‘Meara, en það var þokkalegt, síðan á Montgomerie í rosalegu roki en þurru veðri.  Á þeim velli eru amk. 100 „sandkassar“, þannig að völlurinn er ekki sá auðveldasti.

Þriðja daginn var spilað á O‘Meara, rástími kl. 08:00. Keiliskonur spiluðu í hífandi roki og grenjandi rigningu, enginn úti nema þær og það varð óspilandi og þær urðu að hætta eftir 4 holur.

Siðasta daginn var síðan Montgomerie spilaður, þar tókst að ljúka hringinn í grenjandi rigningu, en allt gekk ljómandi vel, enda eru „Sveiflurnar“ „hörkukellur“.

Á Carton House fór Heimsmestaramót áhugakylfinga fram nú fyrr á árinu.

Það var Magnús Birgisson, golfkennari sem skipulagði ferðina.