Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2018 | 06:45

Bandaríska háskólagolfið: Helga best þegar Albany landaði 6. sætinu í Boston

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu University at Albany urðu í 6. sæti á Boston College Intercollegiate.

Þátttakendur voru 89 frá 17 háskólum.

Mótið fór fram 24.-25. september 2018 í Blue Hill CC í Canton, Massachusetts.

Helga ásamt liðsfélaga sínum, Madison Walker, voru bestar í liði University at Albany, en þær deildu 21. sæti í einstaklingskeppninni.

Helga lék á samtals  15 yfir pari, 231 högg (76 77 78).

Sjá má lokastöðuna á Boston College Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót Helgu Kristínar og „The Great Danes“, sem er nafn golfliðs Albany, er 5. október n.k.