Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2018 | 06:00

Bandaríska háskólagolfið: Gísli bestur Íslendinganna á Maui Jim Intercollegiate

Það voru 3 íslenskir kylfingar, sem luku keppni á Maui Jim Intercollegiate; Gísli Sveinbergsson, GK; Bjarki Pétursson, GB og Egill Ragnar Gunnarsson, GKG.

Mótið stóð frá 21.-23. september 2018 og fór fram í Mirabel golfklúbbnum í Scottsdale, Arizona.

Þátttakendur voru 78 frá 14 háskólum.

Gísli stóð sig best Íslendinganna; lauk keppni í 16. sætinu með skor upp á samtals 6 undir pari, 204 höggum (67 68 69).

Bjarki varð T-20 á samtals 4 undir pari, 206 höggum (70 66 70).

Lið Gísla og Bjarka, Kent State varð í 4. sæti í liðakeppninni.

Egill Ragnar lék á samtals 7 yfir pari, 207 höggum (73 67 77) og varð T-63.

Lið Egils Ragnars í bandaríska háskólagolfinu, Georgia State varð í 13. sæti.

Sjá má lokastöðuna á Maui Jim Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót Gísla, Bjarka og Kent State er 1. október n.k. og næsta mót Egils Ragnars og félaga í Georgia State er X. október n.k.