Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2018 | 19:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-10 á Harboe Open

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, tók þátt í Harboe Open  – by Slagelse Kommune & Sparekassen Kronjylland mótinu, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni, en mótið fór fram dagana 19.-21. september og lauk í dag.

Guðmundur lék á samtals 5 undir pari, 211 höggum (70 68 73).

Hann lauk keppni T-10 þ.e. deildi 10. sætinu ásamt þeim Stefan Idstam frá Svíþjóð og Elías Valàs Falkenér Bertheussen frá Danmörku.

Sjá má lokastöðuna á Harboe Open með því að  SMELLA HÉR: