Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2018 | 20:00

Evian 2018: Stanford sigraði

Það var bandaríski kylfingurinn Angela Stanford sem sigraði á Evian Masters risamótinu, 5. og síðasta risamóti kvennagolfsins í ár.

Þetta er 1. risatitill hinnar 40 ára Stanford og hann kemur 15 árum eftir að hún varð í 2. sæti á Opna bandaríska kvenrisamótinu.

Lokahringur Stanford upp á 3 undir pari, 68 högg dugði til sigurs og hafði hún betur en landa hennar, Amy Olson, sem búin var að vera í forystu mestallt mótið, en Olson varð að láta sér lynda að deila 2. sætinu með löndum sínum Mo Martin og Austin Ernst og auk þess Sei Yong Kim frá S-Kóreu, en allar voru þær 1 höggi á eftir Stanford þ.e. allar á samtals 11 undir pari, hver.

Sigurskor Angelu Stanford var 12 undir pari, 272 högg (72 64 68 68) og hlaut hún  $577,500 sigurtékka.

Þetta var í 14. sinn á ferli Stanford, sem hún nær að vera meðal efstu 10 á risamótum og í þetta sinn …. sigraði hún!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir var ekki meðal keppenda.

Sjá má lokastöðu Evían risamótsins með því að SMELLA HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta lokahrings Evian risamótsins SMELLIÐ HÉR: