Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 21:00

LET: Ólafía T-7 e. 3. dag í Frakklandi

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er að leika frábært golf á Lacoste Ladies Open de France.

Hún er jöfn 2 öðrum í 7. sæti eftir 3. keppnisdag mótsins.

Í dag lék Ólafía á 3 undir pari, 68 höggum.

Samtals er Ólafía búin að spila á 6 undir pari, 207 höggum (71 68 68).

Í efsta sæti eftir 3. dag er danski kylfingurinn Nanna Koerstz Madsen á samtals 10 undir pari, 203 höggum (69 65 69) og munar því aðeins 4 höggum á Ólafíu Þórunni og þeirra sem er efstí mótinu.

Til þess að sjá stöðuna á Lacoste Ladies Open de France að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: