Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 07:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Axel og Haraldur úr leik í Englandi

Atvinnukylfingarnir Axel Bóasson og Haraldur Franklín Magnús eru úr leik á Bridgestone Challenge, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.

Mótið fer fram á golfvelli Luton Hoo hótelsins, í Bedfordshire í Englandi, dagana 6.-9. september.

Axel lék á samtals 2 undir pari, 140 höggum ( 68 72) og munaði aðeins 1 höggi að hann næði niðurskurði sem var miðaður við samtals 3 undir pari eða betra eftir 2 hringi.

Haraldur Franklín lék á samtals sléttu pari, 142 höggum (73 69) og er einnig úr leik eins og segir.

Sjá má stöðuna á Bridgestone Challenge með því að SMELLA HÉR: