Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2018 | 18:00

Ísland í 14. sæti á EM kvenna 50+ í Belgíu eftir 1. dag

Evrópumót eldri kylfinga kvenna í liðakeppni hófst í dag 4. september á Mont Garni vellinum í Belgíu. Alls eru 19 þjóðir sem taka þátt. Afreksnefnd GSÍ og afreksstjóri GSÍ völdu eftirtalda kylfinga í liðið:

Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK
Ásgerður Sverrisdóttir, GR
María Málfríður Guðnadóttir, GKG
Steinunn Sæmundsdóttir, GR
Svala Óskarsdóttir, GL
Þórdís Geirsdóttir, GK

Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Ísland er í 14. sæti eftir 1. keppnisdaginn á +52 samtals. Spánn er í efsta sæti á +14 samtals og Belgía er í öðru sæti á +17.

35. sæti: Þórdís Geirsdóttir 79 högg (+6)
64. sæti: Anna Snædís Sigmarsdóttir 83 högg (+10)
64. sæti: Svala Óskarsdóttir 83 högg (+10)
80. sæti: María Málfríður Guðnadóttir 86 högg (+13)
80. sæti: Steinunn Sæmundsdóttir 86 högg (+13)
93.sæti: Ásgerður Sverrisdóttir 89 högg (+16)

Mynd og texti: GSÍ