Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2018 | 08:00

Ryder Cup 2018: Olesen öruggur í Ryder lið Evrópu

Danski kylfingurinn Thorbjörn Olesen tryggði sér síðasta fasta sætið í Ryder bikars lið Evrópu í gær á heimavelli í Made in Danmark mótinu.

Aðeins Eddie Pepperell og Matthew Fitzpatrick hefðu getað velgt Olesen undir uggum og velt honum úr sessi með sigri á Made in Denmark en það varð ekki þar sem enski kylfingurinn Matt Wallace bar sigur úr býtum í mótinu.

Olesen varð T-20, Pepperell T-56 og Fitz T-7 á Made in Denmark 2018, sem fram fór á golfvelli Silkeborg Ry í Århus í Danmörku.

Þetta er í fyrsta sinn sem Thorbjörn Olesen spilar í Ryder bikars liði Evrópu.

Eftir að ljóst var að hann hefði komist í liðið sagði Olesen m.a.:

Ég get ekki komið því í orð hversu hamingjusamur ég er nú!!! Það hefir alltaf verið draumur minn að vera Ryder bikars leikmaður, en það verður enn meira spes með góðan vin minn @TBjorn sem fyrirliða. Megi leikar hefjast!

Á miðvikudaginn n.k. tilkynnir Thomas Björn fyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu um „villtu kortin“ þ.e. val hans á 4 leikmönnum, sem fullkomna evrópska liðið.