Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 14:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-19 í Finnlandi

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, lauk keppni T-19 þ.e. jafn 6 öðrum kylfingum í 19. sæti á Timberwise Finnish Open hosted by Jaakko Mäkitalo, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni.

Mótið fór fram á Alastaro Golf golfstaðnum, í Virttaa, Finnlandi dagana 30. ágúst – 1. september 2018 og lauk því í dag.

Guðmundur Ágúst lék á samtals pari, 216 höggum (73 72 71).

Sigurvegari í mótinu varð Svíinn Stefan Idstam, en sigurskor hans var 11 undir pari, 205 högg (69 70 66).

Til þess að sjá lokastöðuna á Timberwise Finnish Open hosted by Jaakko Mäkitalo SMELLIÐ HÉR: