Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2018 | 22:00

LET Access: Guðrún Brá á 75 e. 1. dag í Svíþjóð

Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr GK, tekur þátt í móti vikunnar á LET Access, Turfman Allerum Open.

Mótið er þriggja daga frá 30. ágúst – 1. september 2018 og fer fram á velli Allerum golfklúbbsins í Helsingborg, Svíþjóð.

Guðrún Brá lék 1. hring á 3 yfir pari, 75 höggum og er 1 höggi undir niðurskurðarlínunni.

Spennandi að fylgjast með Guðrúnu Brá á morgun!!!

Til þess að sjá stöðuna á Turfman Allerum Open SMELLIÐ HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Frosti.