Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2018 | 07:00

LPGA: Ólafía Þórunn á 72 á 1. hring Cambia Portland mótsins

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir , atvinnukylfingur úr GR, lék á 72 höggum á 1. hring Cambia Portland mótsins, sem er mót vikunnar á LPGA.

Ólafía Þórunn fékk 2 fugla og 2 skolla.

Sem stendur er Ólafía Þórunn T-89 og 1 höggi fyrir neðan niðurskurðarlínu og verður að eiga frábæran hring í dag til þess að komast í gegnum niðurskurð.

Í efsta sæti er bandaríski kylfingurinn Marina Alex, en hún lék á 10 undir pari, 62 höggum.

Sjá má stöðuna á Cambia Portland með því að SMELLA HÉR: