Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2018 | 20:00

Evróputúrinn: Olesen keppir um síðasta sjálfkrafa Ryder Cup sætið í liði Evrópu

Þrír munu kljást um síðasta sjálfkrafa sætið í Ryder Cup lið Evrópu á Made in Denmark mótinu, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum, sem hefst á morgun.

Það eru Daninn og heimamaðurinn Thorbjörn Olesen, Matt Fitzpatrick og Eddie Pepperell.

Mótið fer fram á heimavelli fyrirliða liðs Evrópu, Thomas Björn, Silkeborg Ry.

Einn af framangreindum þremenningum mun vera í Ryder liði Evrópu sem nú samanstendur af þeim: Francesco Molinari, Justin Rose, Tyrrell Hatton, Rory McIlroy, Tommy Fleetwood, Jon Rahm og Alex Noren.

Olesen nægir að lenda í einu af efstu 6 sætunum til þess að tryggja sér farmiðann til Frakklands með Ryderliði Evrópu í fyrsta sinn, meðan að Fitzpatrick og Pepperell verða að vinna og vona að Olesen lendi neðarlega á skortöflunni.

Það er alltaf síðasta úrtökumótið sem sýnir hvað býr í mönnum og sem fyrirliði vill maður sjá þá koma þarna út og ná tökum á aðstæðunum,“ sagði Björn.

Eddie og Fitz verða að hafa fyrir hlutunum þar sem þeir verða að vinna mótið, þannig að farið er fram á mikið en þeir eru færir um að ná þessu. Maður verður bara að vera á hliðarlínunni og fylgjast með. Þetta verður mjög áhugavert.“

Allir þrír verða undir smásjánni þar sem Björn spilar sjálfur fyrstu tvo hringina með Pepperell og Martin Kaymer meðan að aðstoðarmenn hans Lee Westwood og Robert Karlsson spila með Olesen og Fitzpatrick.

Síðan mun Björn tilkynna um fyrirliðaval sitt á 4 kylfingum (ens: wildcards) á miðvikudaginn í næstu viku!

Taka skal fram að Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson er meðal keppenda á Made in Denmark.

Sjöfaldi Íslandsmeistarinn (Birgir Leifur) hefir leikið á 9 mótum á Evróputúrnum á þessu tímabili. Þar að auki hefur hann leikið á 9 mótum á Áskorendamótaröð Evrópu, sem er næst sterkasta atvinnumótaröðin í Evrópu.

Alls hefur Birgir Leifur leikið á 69 mótum á Evrópumótaröðinni frá upphafi – og er hann langefstur í þeirri tölfræði hjá íslenskum atvinnukylfingum í karlaflokki. Árin 2009 og 2007 lék Birgir á 17 og 18 mótum á Evrópumótaröðinni – en á þeim tíma var hann með fullan keppnisrétt á mótaröðinni.

Birgir Leifur fer út kl. 8:50 að staðartíma (kl. 6:50 að íslenskum tíma) og er í ráshóp með Englendingunum Jonathan Thomson og Steve Webster.

Fylgjast má með gangi mála á Made in Denmark með því að SMELLA HÉR: