Paulina Gretzky fúl?
Paulina Gretzky var mikið milli tannanna á fólki sl. helgi vegna myndar sem birtist af henni þar sem hún er að horfa á viðtal fréttamanns CBS Amöndu Balionis við eiginmann sinn Dustin Johnson (DJ).
Gretzky virtist lítt skemmt að sjá fegurðardísina taka viðtalið við DJ og náðist á mynd með krosslagða handleggi af Terez Owens.
Og meðan internetið hrærði í nornarpottinum, tóku Gretzky og Balionis málið í sínar hendur og sendu frá sér „sameiginlega fréttatilkynningu.“
Í henni stóð orðrétt:
“Our joint statement on a recent meme: Hi Haters 😏,”
Stutt og laggott!!!
Hinn 2 barna 34 ára DJ lauk keppni á Northern Trust T-11 og tíar næst upp á morgun á Dell Technologies Championship á TCP Boston, nú þegar aðeins eru 3 vikur í FedEx Cup umspilið.
Og Gretzky? Hún stingur upp í „hatarana“, ef þeir skyldu dirfast að munnhöggvast á henni aftur á félagsmiðlunum 🙂
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
