Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 21:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur úr leik

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tók þátt í D+D Real Czech Masters, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum.

Hann komst því miður ekki í gegnum niðurskurð.

Birgir Leifur lék á samtals sléttu pari, 144 höggum (70 74) en það dugði ekki til niðurskurður var miðaður við 4 undir pari eða betra.

Í efsta sæti eftir 2. hring D+D REal Czech Masters er Gavin Green frá Malasíu en hann hefir spilað á samtals 12 undir pari (64 68).

Til þess að sjá stöðuna á D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR: