Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 20:00

LPGA: Ólafía fór g. niðurskurð!

Ólafía Þórunn „okkar“Kristinsdóttir tekur þátt í   CP Women´s Open, sem er mót vikunnar á LPGA og fer fram í Kanada.

Hún flaug í gegnum niðurskurð, hefir spilað á samtals 3 undir pari, 141 höggi (68 73).

Í dag á 2. hring mótsins lék Ólafía á 1 yfir pari, 73 höggum fékk 1 fugl og 2 skolla.

Niðurskurður er miðaður við samtals 2 undir pari eða betra.

Sem stendur er Ólafía Þórunn T-45 en sætistalan getur enn breyst því nokkrar eiga eftir að ljúka hringjum sínum.

Til þess að sjá stöðuna á CP Women´s Open SMELLIÐ HÉR: