Haraldur Franklín Magnús
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2018 | 23:00

Nordic Golf League: Haraldur Franklín T-61 e. 1. dag á Åhus KGK ProAm

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús, úr GR, tekur þátt í Åhus KGK ProAm, en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni.

Mótið fer fram í Kristianstads golfklúbbnum i Åhus, í Danmörku.

Haraldur hóf keppni á 10. braut  og kom í hús á 4 yfir pari, 74 höggum.

Á hringnum fékk Haraldur Franklín 3 fugla, 5 skolla og 1 skramba.

Eftir 1. dag er Haraldur Franklín T-61.

Til þess að sjá stöðuna í Åhus  KGK ProAm mótinu SMELLIÐ HÉR: