Eimskipsmótaröðin 2018 (8): Guðmundur Ágúst og Helga Kristín efst e. 1. dag
Það er mikil spenna sem ríkir á Securitasmótinu þar sem keppt er um GR-bikarinn á Eimskipsmótaröðinni. Góð skor voru á fyrsta hringnum í blíðviðrinu á Grafarholtsvelli í dag. Mótið er jafnframt lokamót Eimskipsmótaraðarinnar 2017-2018.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) er efstur í karlaflokki á -4 og Helga Kristín Einarsdóttir (GK) lék á -3. Rúnar Arnórsson úr Keili lék á -3 og er ekki langt á eftir Guðmundi. Sex kylfingar eru jafnir í 3.-8. sæti og þar á meðal er Axel Bóasson, GK á -1.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Keili, er sjö höggum á eftir Helgu.
Mótið hófst fimmtudaginn 23. ágúst og fer það fram á Grafarholtsvelli. Stigahæstu keppendur Eimskipsmótaraðarinnar 2017-2018 eru með keppnisrétt á þessu móti.
Staða efstu kylfinga í karlaflokki eftir 1. keppnisdag:
1. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 67 högg (-4)
2. Rúnar Arnórsson, GK 68 högg (-3)
3.-8. Hákon Örn Magnússon, GR 70 högg (-1)
3.-8. Andri Þór Björnsson, GR 70 högg (-1)
3.-8. Andri Már Óskarsson, GHR 70 högg (-1)
3.-8. Ólafur Björn Loftsson, GKG 70 högg (-1)
3.-8. Kristófer Orri Þórðarson, GKG 70 högg (-1)
3.-8. Axel Bóasson, GK 70 högg (-1)
9.-11. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG 71 högg (par)
9.-11.Ingvar Andri Magnússon, GKG 71 högg (par)
9.-11.Kristján Þór Einarsson, GM 71 högg (par)
Staða efstu kylfinga í kvennaflokki eftir 1. keppnisdag:
1. Helga Kristín Einarsdóttir, GK 68 högg (-3)
2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 75 högg (+4)
3.-4. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 77 högg (+6)
3.-4. Berglind Björnsdóttir, GR 77 högg (+6)
5.-7. Heiða Guðnadóttir GM 78 högg (+7)
5.-7. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR 78 högg (+7)
5.-7. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK 78 högg (+7)
Keppendalistin er sterkur. Þar má nefna Íslandsmeistarana Axel Bóasson (GK) og Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur (GK), atvinnukylfingana Andra Þó Björnsson (GR) og Guðmund Ágúst Kristjánsson (GR).
Mótið er áttunda mótið á keppnistímabilinu 2017-2018 og ráðast úrslitin í baráttunni um stigameistaratitilinn í karla – og kvennaflokki á Eimskipsmótaröðinni.
Skor keppenda er uppfært hér.
Stigalistanum verður endurraðað í samræmi við reglugerð um stigamót og viðauka II við reglugerðina. Það er gert til þess keppnin um stigameistaratitilinn verði jafnari á lokamótinu.
Verðlaunin er glæsileg á þessu móti. Atvinnukylfingar á borð við Íslandsmeistarana Axel Bóasson úr GK og Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur gætu fengið allt að 750.000. kr í sinn hlut.
Til þess þurfa þau að sigra á Securitasmótinu og landa stigameistaratitlinum á Eimskipsmótaröðinni samhliða sigrinum í GR-bikarinnar.
Ef áhugakylfingur sigrar í karla – eða kvennaflokki fær hann 70.000 kr. í sinn hlut.
Atvinnukylfingar geta fengið 250.000 kr. fyrir sigurinn á Securitasmótinu – GR-bikarinn.
Stigameistarar á Eimskipsmótaröðinni 2017-2018 fá 250.000 í sinn hlut ef þau eru atvinnukylfingar en áhugakylfingar fá 70.000 kr. gjafakort.
Texti og mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
