Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2018 | 21:30

LPGA: Ólafía Þórunn á -1 e. 9 holur i Kanada – Fylgist m/HÉR!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er við keppni á CP Women´s Open í Kanada.

Þegar 1. hringurinn hjá henni er hálfnaður er hún búin að spila á 1 undir pari og er sem stendur T-65.

Ólafía byrjaði á 10. teig og fékk skolla á par-3 11. holunni. Hún tók skollann aftur á glæsilegan máta á par-5 14. brautinni þar sem hún fékk örn!

Vonandi er að Ólafía Þórunn komist í gegnum niðurskurð á morgun!

Efstar í mótinu, sem stendur eru þær Ariya Jutanugarn frá Thaílandi og Mariajo Uribe frá Kólombíu, báðar á 8 undir pari, hvor.

Sjá má stöðuna eftir 1. dag á CP Women´s Open með því að SMELLA HÉR: