Frægir kylfingar: Aretha Franklin var aðdáandi Tiger
Samúðarskeytunum rigndi yfir aðstandendur fimmtudag fyrir viku, 16. ágúst 2018, þegar fréttir bárust af því að „drottning Soul-tónlistarinnar“ Aretha Franklin hefði látist af völdum krabbameins í brisi, 76 ára að aldri.
Franklin var ofurstjarna, sem átti 20 lög, sem trónuðu í 1. sæti vinsældalista þ.á.m. lögin „Respect“, „Chain of Fools“ og „(You Make Me Feel Like) A Natural Woman.“
Hún var fyrsta söngkonan sem tekin var inn í Frægðarhöll Rock and Roll. Hún hlaut 18 Grammy-verðlaun. Hún söng við jarðarför Martin Luther King. Hún söng við embættistöku Bill Clinton og Barack Obama. Hún var óumdeilanlega ein af stærstu stjörnum og söngkonum síns tíma.
Hún var líka kylfingur og golfáhangandi þ.e. aðdáandi Tiger Woods og sagðist eitt sinn vilja ganga 18 holur með honum. Það kom þó aldrei til þess nema e.t.v. óbeint, því það sást til hennar meðal áhorfenda á móti í Akron, Ohio í ágúst 1997 þar sem hún fylgdist með Tiger.
Þannig að einhvern veginn tókst „drottningu Soul-tónlistarinnar“ að laumast út óþekkt og fylgjast með átrúnaðargoði sínu.
Sjálf sagðist hún í viðtali oft fara á æfingasvæðið til að slá nokkra bolta og eins fannst henni afslappandi að spila nokkrar holur.
Aretha var fædd 25. mars 1942 í Memphis, Tennessee. Hún lætur eftir sig 4 uppkomin börn: Ted White Jr., Kecalf Cunningham, Clarence Franklin og Edward Franklin.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
