Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2018 | 08:00

Beit af fingur kylfings!

Deila milli tveggja kylfinga í golfklúbbi í Massachusetts endaði blóðugt þegar annar þeirra beit af fingur hins, segir í frétt frá Fox News.

Lögregla var kölluð á vettvang í Southers Marsh golfklúbbinn í Plymouth um kl 6:30 s.l. laugardag vegna slagsmála tveggja kylfinga, sagði yfirlögreglustjóri  Plymouth lögreglunnar, Michael Botieri skv. Boston25 News. Þegar komið var á staðinn fundu þeir annan kylfinginn sem var með „bitsár á annarri hendi.“

Það var 47 ára maður, sem engin nánari deili voru gefin á, sem var handtekinn og ákærður fyrir líkamsárás.

Slökkviliðið kom á staðinn og komst að því að þumarputti brotaþola hafði verið bitinn af niður að hnúa, skv. WCVB.

„Skv. nýjustu fréttum lögreglunnar voru það tvö fjórmenningslið sem lentu í deilum og það er fingur sem hefir verið bitinn af …. tjónþoli liggur á aðalinnganginum veginum milli þriggja golfbíla,“ sagði í talstöðinni, skv. lögreglustöðínni.

Farið var með þann bitna á sjúkrahús til að gera að sárum hans. Ekki var gefin upp líðan hans á laugardeginum.

Það er óljóst hvað leiddi til deilnanna eða hvort áfengi var með í spilinu.

Fyrir líkamsárás eða „mayhem“ eins og það kallast á ensku eru viðurlög upp á  20 ára fangelsi.