Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 19. 2018 | 22:09

PGA: Snedeker sigraði á Wyndham!

Það var Brandt Snedeker sem sigraði nú fyrir stuttu á Wyndham Championship.

Snedeker hefir verið í forystu allt mótið, en hann varð sá 10. í sögu PGA mótaraðarinnar til þess að spila undir 60 í PGA Tour móti!

Erlendir golffjölmiðlar eru farnir að kalla Snedeker „Mr. 59″ þ.e. „Herra 59!“

Snedeker lék samtals á 21 undir pari,  259 höggum (59 67 68 65).

Í 2. sæti urðu bandaríski kylfingurinn Webb Simpson og CT Pan frá Tapei, en þeir léku á samtals 18 undir pari, hvor.

Til þess að sjá lokastöðuna á Wyndham Championship SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 4. hrings á Wyndham Championship SMELLIÐ HÉR:  (verður sett inn um leið og myndskeiðið er til!)