Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 19. 2018 | 11:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur varð T-68 á Nordea Masters

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lauk keppni í dag á Nordea Masters.

Hann lék á samtals 3 yfir pari, 283 höggum (67 70 75 71) og varð jafn 3 öðrum í 68 sæti þ.e. T-68.

Meðal þeirra sem deildu 68. sætinu með Birgi Leif var Edoardo Molinari, bróðir sigurvegara Opna breska í ár, Francesco Molinari!

Englendingurinn Paul Waring sigraði eftir 1 holu bráðabana við Thomas Aiken frá S-Afríku, þar sem par-5 18. hola golfvallar Hills golfklúbbsins var spiluð aftur og Waring fékk par meðan Aiken tapaði á skolla.

Til þess að sjá lokastöðuna á Norda Masters SMELLIÐ HÉR: