Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2018 | 22:30

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-13 á Holtsmark Open

Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur í GR tók þátt í Holtsmark Open.

Mótið fór fram í Holtsmark golfklúbbnum í Danmörku.

Guðmundur Ágúst lék samtals  á 6 undir pari, 210 höggum (70 70 70).

Hann hafnaði jafn öðrum í 13. sæti, sem er frábær árangur!!!

Sigurvegari mótsins varð Svíinn Jacob Glennemo en hann lék á samtals 15 undir pari (64 69 68).

Til þess að sjá lokastöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR: