Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2018 | 18:00

LPGA: Ólafía Þórunn úr leik á Indy Tech

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir lék 2. hring á Indy Women in Tech mótinu á 72 höggum.

Samtals lék Ólafía á 1 undir pari, 143 höggum (71 72).

Hún er úr leik en niðurskurður er miðaður við 3 undir pari eða betra.

Óveður þ.e. miklar rigningar hafa orðið til þess að fresta hefir þurft 2. hring ítrekað og eiga því nokkrar eftir að ljúka leik en nánast öruggt er að Ólafía komist ekki í gegnum nðurskurð – skorin eru einfadlega of lág í mótinu.

Til þess að fylgjast með stöðunni á Indy in Tech mótinu SMELLIÐ HÉR: