Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2018 | 07:00

LPGA: Ólafía á 71 á 1. degi Indy Tech

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir úr GR lék 1. hring á Indy Women in Tech Championship á 1 undir pari, 71 höggi.

Á 1. hring fékk Ólafía Þórunn 3 fugla og 2 skolla og er T-87, sem stendur.

Niðurskurður er miðaður við 2 undir pari eða betra sem stendur og því er Ólafía sem stendur undir niðurskurðarlínunni og verður að bæta aðeins í, í dag.

Spennandi að sjá hvort Ólafía komist gegnum niðurskurð!!!

Efst í mótinu er hin mexíkansk-bandaríska Lizette Salas, en hún kom í hús á 10 undir pari, 62 höggum!!!

Um Lizette sjá eldri grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR: 

Til þess að sjá stöðuna á Indy Tech SMELLIÐ HÉR: